29 ágú. 2008KKÍ hélt á miðvikudaginn námskeið fyrir SmartStat forritið sem verður notað í vetur hjá öllum félögum í úrvalsdeild karla og kvenna sem og í 1. deild karla. Námskeiðið var haldið fyrir landsleik Íslands og Sviss að Ásvöllum og tókst vel. Það var Eyjólfur Þ. Guðlaugsson, gjaldkeri og SmartStat sérfræðingur KKÍ sem hélt námskeiðið og kenndi mönnum réttu handtökin. Rúmlega 20 manns mættu og kynntu sér forritið fyrir hönd síns félags og prufuðu sig áfram yfir leik Boston Celtics og Atlanta Hawks frá því í úrslitakeppninni 1988. Stefnt er að því að halda annað námskeið þegar nær dregur en það er mikilvægt að félögin sendi sína fulltrúa til að hafa tíma til að kynna sér þetta forrit vel og æfa sig áður en leiktíðin hefst. Næsta námskeiðið verður auglýst síðar hér á síðunni og í pósti til félagana.