28 ágú. 2008Landsliðskonurnar Kristrún Sigurjónsdóttir settu báðar persónuleg stigamet í sigurleiknum á móti Sviss á Ásvöllum í gærkvöldi en saman skoruðu þær 25 stig og sjö þriggja stiga körfur í leiknum. Kristrún var með 14 stig í leiknum (12 úr þriggja skotum) og Pálína skoraði 11 stig (9 úr þriggja stiga skotum). Þær voru báðar að brjóta tíu stiga múrinn í fyrsta sinn með A-landsliðinu. Kristrún Sigurjónsdóttir var þarna að spila sinn 13. landsleik og hafði mest skorað 9 stig í sigurleik á móti Írlandi 23. september 2006. Kristrún hefur nú skorað 56 stig í 13 landsleikjum og hækkaði því meðalskorið sitt úr 3,5 stigum í leik upp í 4,3 stig að meðaltali. Kristrún hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og hefur þar með skorað ellefu þriggja stiga körfur fyrir landsliðið. Pálína Gunnlaugsdóttir var þarna að spila sinn 11. landsleik og hafði mest skorað 9 stig í einum leik en sá var lokaleikurinn á Norðurlandamótinu á móti Danmörku 9. ágúst síðastliðinn. Pálína hafði mest skorað fimm stig í Evrópuleik og meira en tvöfaldaði því stigamet sitt í Evrópukeppni á móti Sviss. Pálína hefur nú skorað 47 stig í 11 landsleikjum og hækkaði því meðalskorið sitt úr 3,6 stigum í leik upp í 4,3 stig að meðaltali. Pálína Gunnlaugsdóttir hefur skorað 33 stig fyrir kvennalandsliðið í fimm fyrstu landsleikjum ársins eða 6,6 stig að meðaltali í leik.