27 ágú. 2008Í kvöld leikur A-landslið kvenna fyrsta leikinn í Evrópukeppninni og er andstæðingurinn Sviss. Eftir leikinn munu landsliðskonur Íslands árita plaköt fyrir þá sem vilja á meðan birgðir endast. Eins og fram hefur komið er sannkölluð körfuboltaveisla framundan þar sem kvenna og karlalandsliðin eru að taka þátt í Evrópukeppninni. Viljum við hvetja sem flesta til að mæta á leikina og styðja landsliðsfólkið okkar næstu vikurnar. Leikurinn gegn Sviss fer fram á Ásvöllum og hefst hann klukkan 19:15