22 ágú. 2008U-16 ára landsliðið leikur gegn Belgíu í dag klukkan 11:45 að íslenskum tíma. Belgía er með gott lið og því verður íslenska liðið að leika betur en það gerði gegn Eistum í gær. Leikur liðsins var mjög slakur gegn Eistum og má segja að það hafi verið slakasti leikur liðsins á mótinu til þessa. Strákarnir eru staðráðnir í að leggja sig alla fram og sýna sjálfum sér fyrst og fremst að þeir geti gert mun betur en í gær.