21 ágú. 2008Fyrsti leikur íslenska U-16 ára landsliðsins í milliriðlinum verður gegn Eistum klukkan 14:00 í dag. Leikurinn fer fram í íþróttahúsi sem er við hliðina á hótelinu sem öll liðin eru á. Milliriðill íslenska liðsins fer allur fram í þessu íþróttahúsi. Hópurinn fer því labbandi í leikina sem eftur eru og þurfa því ekki rútu eða sporvagna til að komast í leikina. Íslenska liðið hefur leikið sína leiki á mótinu í 3 mismunandi húsum en báðir sigurleikirnir gegn Austurríki og Dönum fóru fram í húsinu sem leikir íslenska liðsins fara fram í milliriðlinum. Hægt er að fylgjast með leikjunum [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/default.asp [v-]hér[slod-]