21 ágú. 2008A-landslið karla tapaði fyrsta leik sínum á æfingamóti á Írlandi fyrr í kvöld. Í hálfleik var jafnt 31:31 en Pólverjar byrjuðu 3. leikhluta með látum og náðu 19:4 spretti og héldu svo áfram jafnt og þétt allan leikhlutann og þegar upp var staðið höfðu þeir unnið leikhlutann 11:33. Lokatölur leiksins voru 65:84. Jón Arnór Stefánsson 11 (5 stoðsendingar) Hlynur Bæringsson 10 Logi Gunnarsson 9 Sigurður Þorvaldsson 6 (8 fráköst) Jakob Sigurðarson 6 (3 stolnir) Páll Axel Vilbergsson 5 Fannar Ólafsson 4 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 4 Magnús Þór Gunnarsson 3 Helgi Már Magnússon 3 Sveinbjörn Claessen 2 Friðrik Stefánsson 2