20 ágú. 2008Mikið eru um að vera í landsliðsverkefnum KKÍ þessa dagana. A-landslið karla fór út í morgun á æfingamótið Emerald Hoops á Írlandi, A-landslið kvenna spilar sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni 27. ágúst næstkomandi hér heima gegn Sviss og U16 liðið okkar er í Bosníu þessa dagana í B-deild Evrópukeppninnar. Strákar fæddir '91 æfðu um síðustu helgi frá föstudegi til sunnudags í KR-heimilinu og í Þorlákshöfn í síðasta sinn í bili, en um jólin munu æfingar hefjast að nýju. Ingi Þór Steinþórsson er þjálfari liðsins. Hópurinn samanstendur af strákum sem fæddir eru 1991 en á æfingunum sem fram fara um jólin koma leikmenn sem hafa staðið sig vel með ´92 landsliðinu inn í hópinn og eftir æfingarnar verður hópurinn skorin niður í endanlegan hóp. Næstu verkefni liðsins verða í maí þegar Norðurlandamótið fer fram í Solna í Svíþjóð og hugsanlega evrópukeppni í kjölfarið.