19 ágú. 2008Klukkutíma seinkun verður á leik Íslands og Danmerkur í B-deild Evrópumóts U-16 ára í Bosníu. Leikurinn átti að hefjast kl. 17:00 en hefst væntanlega klukkutíma seinna vegna þess að annar hringurinn brotnaði í upphitun í leiknum á undan. Íslensku strákarnir þurfa því að bíða aðeins lengur eftir að fá að taka á frændum sínum Dönum.