18 ágú. 2008Íslenska U-16 ára landsliðið var að leika frábærlega í fyrri hálfleik gegn sterku liði Svartfjallalands og hafði liðið forystu 41:35 þegar flautað var til hálfleiks. Eftir fyrsta leikhluta var íslenska liðið 1 stigi undir, 21:22. Íslenska liðið lék frábæran 2. leikhluta og vann hann 20:13 og leiddi í hálfleik eins og áður segir 41:35 Svartfellingar sem hafa unnið alla sína leiki til þessa á mótinu komu gríðarlega stemmdir til síðari hálfleiks og spiluðu mjög grimma maður á mann vörn allan völlinn. Strákarnir áttu erfitt uppdráttar og töpuðust margir boltar á þannig stöðum að Svartfjallaland náði að skora mikið af auðveldum körfum. Svartfjallaland vann 3. leikhlutann 34:8 og lögðu grunninn að nokkuð öruggum sigri með þessum kafla. Staðan eftir 3. hlutann var 69:49 Íslensku strákarnir neituðu hins vegar að gefast upp og náðu að vinna 4. leikhluta 19:16 Lokatölur voru 68:85. Allar upplýsingar um tölfræði er að finna [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/default.asp[v-]hér[slod-] Allir leikmenn Íslands komu við sögu og þeir leikmenn sem minna hafa leikið hingað til á mótinu komu duglegir af bekknum og létu finna fyrir sér. Oddur Ólafsson sem snéri sig illa á ökkla í fyrsta leik kom við sögu í leiknum og er hann allur að ná fyrri styrk. Næsti leikur liðsins er á morgun en þá er leikið við Dani og verður sá leikur að vinnast til að liðið nái að leika um 9. - 16 sætið á mótinu auk þess sem önnur úrslit þurfa að vera okkur hagstæð. Leikurinn hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma.