18 ágú. 2008Í dag klukkan 14 að íslenskum tíma mætir 16 ára landsliðið Svartfjallalandi. Svartfjallaland hefur unnið alla leiki sína til þessa og þar á meðal heimamenn í framlengdum leik. Það má því búast við erfiðum leik hjá okkar drengjum sem eru þó staðráðnir í að standa sig vel. Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með leiknum beint á netinu [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/default.asp[v-]hér[slod-] Oddur Ólafsson leikmaður Hamars meiddist á ökkla í fyrsta leik og hefur ekki getað leikið með síðan. Hann er hins vegar á góðum batavegi enda í góðum höndum Jófríðar Halldórsdóttur (Fíu) sjúkraþjálfara liðsins og stefnt er að að Oddur komi aftur inn í liðið fljótlega. Hópurinn sendir bestu kveðjur heim.