15 ágú. 2008Íslenska U-16 ára landslið drengja lék sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni og voru andstæðingarnir lið heimamanna. Eftir ágætis byrjun þar sem íslenska liðið skoraði 6 fyrstu stig leiksins má segja að strákarnir hafi hlaupið á vegg í orðsins fyllstu. Heimamenn hertu vörnina og voru mjög líkamlegir í maður á mann vörn allan völlinn. Það ásamt súrefnisleysi og miklum hita gerði það að verkum að leikur liðsins fjaraði út smám saman. Í hálfleik var staðan 50:25 Bosníu í vil. Framan af þriðja leikhluta hélst sami munur en undir lok þess þriðja jókst munurinn frekar. Þegar upp var staðið hafði Bosnía öruggan sigur 93:57. Haukur Pálsson skoraði 11 stig, tók 9 fráköst og stal 4 boltum, Björn Kristjánsson gerði 9 stig, Styrmir Gauti Fjeldsteð gerði 8 stig og tók 7 fráköst, Hjalti Valur Þorsteinsson og Óli Ragnar Alexandersson skoruðu 7 stig hvor, Ólafur Helgi gerði 4 sitg, Elvar Sigurðsson 3 stig og þeir Andri Freysson og Oddur Ólafsson, Andri Þór Skúlason og Anton Örn Sandholt gerðu 2 stig hver. Björn Ingvi Björnsson Tyler barðist vel í sínum fyrsta landsleik en náði ekki að skora. Næsti leikur liðsins er gegn Austurríki á morgun en hann er klukkan 14:45 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með honum [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/default.asp[v-]hér[slod-]