14 ágú. 2008U-16 ára landslið karla er statt þegar þetta er skrifað á hóteli í góðu yfirlæti í Slóveníu þar sem rúmlega 8 tíma seinkun varð á fluginu áfram til Sarajevo. Adria Airways bauð hópnum endurgjaldslaust upp á gistingu og kvöldmat vegna þessara óþæginda. Liðið á að fljúga klukkan 05:00 í fyrramálið og verður komið til Sarajevo um 06:00. Það er góður andi í hópnum og þetta útspil Adria Air kom sér mjög vel þar sem fyrsti leikur hópsins er á morgun. Anton Sandholt er með gítarinn með sér og spilaði hann liðsfélaga sína í svefn áðan. Drengirnir senda bestu kveðjur heim.