12 ágú. 2008U16 drengir halda snemma í fyrramálið áleiðis til Bosníu en þar fer fram B deild Evrópukeppninnar þetta árið. 23 lið taka þátt í mótinu en íslenska liðið er í riðli með heimamönnum, Austurríki, Hollandi, Svartfjallalandi og Danmörku. Hópurinn flýgur með Iceland Express til London í fyrramálið og dvelur þar yfir nótt en heldur svo áfram til Lubljana í Slóveníu og þaðan áfram til Sarajevo í Bosníu en áætluð koma þeirra þangað er um 22 á fimmtudagskvöldið. Á föstudagskvöld leikur íslenska liðið svo fyrsta leik sinn, en það verður stórt verkefni gegn heimamönnum og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu þar í landi. Leikurinn hefst klukkan 20.00 að staðartíma. Riðlakeppnin er leikin á fimm dögum svo strákarnir leika fimm daga í röð áður en þeir fá frídag, og framhaldið ræðst svo af árangrinum í riðlinum. Ein breyting hefur orðið á íslenska hópnum en Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ mun verða fararstjóri í ferðinni í stað Erlings Hannessonar sem á ekki heimagengt að þessu sinni. [v+]http://kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=4786[v-]Frétt með hópnum sem fer út.[slod-]. Frétta verður að vænta á heimasíðu sambandsins sem og á karfan.is þá daga sem mótið stendur yfir. Einnig eru fréttir á [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/default.asp[v-]heimasíðu FIBA Europe[slod-]. Þar verður hægt að fylgjast með leikjunum í "LIVE STAT" en ætlunin er að setja tengil á síðuna þegar það liggur fyrir.