9 ágú. 2008Svíar tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í körfubolta eftir 69-59 sigur á Norðmönnum í óopinberum úrslitaleik í dag. Norðmenn voru búnir að vinna alla sína leiki fyrir leikinn en Svíar töpuðu fyrsta leiknum naumlega á móti Dönum en unnu síðan þrjá leiki í röð og það dugði þeim til sigurs. Það er margt líkt með sænska liðinu og því íslenska en Svíarnir eru að fara að keppa í b-deild Evrópukeppninnar í haust alveg eins og íslenska liðið. Finnar eru aftur á móti í A-deild en Norðmenn og Danir taka ekki þátt í Evrópukeppninni að þessu sinni. Sænska liðið er byggt upp af ungum leikmönnum af svokallaðari gullkynslóð en það eru stelpur fæddar á árunum 1987 til 1989. Íslenska liðið er líka með stóran hluta sinna leikmanna á þessu aldursbili (sjö í íslenska liðinu eru fæddar 1987 eða síðar) en þetta er einnig besta kynslóð íslenskar kvennakörfu í langan tíma. Íslenska 1988-liðið vann það sænska tvisvar sinnum á Norðurlandamóti, fyrsti hjá 16 ára liðum vorið 2004 og svo í 18 ára liðum tveimur árum síðar. Íslenska 16 ára liðið tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn 2004, þann fyrsta og eina í sögunni, eftir æsispennandi úrslitaleik við Svíþjóð. Svíar unnu b-deild 20 ára landsliða í Póllandi í síðasta mánuði (stelpur fæddar 1988 og 1989) en Ísland sendi ekki lið á það mót ekki frekar en í fyrrasumar en þá urðu sænsku stelpurnar í 5. sæti í b-deild 20 ára landsliða. 1988-landsliðið okkar stóð sig vel í keppni 16 ára og 18 ára liða og veitti því sænska alltaf mikla keppni á öllum Norðurlandamótunum. Sænska 20 ára landsliðið er þar með komið upp í A-deild á næsta ári en þrír leikmenn liðsins komust meðal annars í úrvalsliðið á þessu móti í Poznan í Póllandi. Lokastaðan á Norðurlandamótinu: 1. sæti Svíþjóð 2. sæti Noregur 3. sæti Finnland 4. sæti Danmörk 5. sæti Ísland Lið mótsins: Louice Halvarsson, Svíþjóð Anna Barthold, Svíþjóð Reetta Piipari, Finnlandi Annette Johansen, Noregi Tiina Sten, Finnland Valin best