8 ágú. 2008Íslenska kvennalandsliðið spilar úrslitaleik um fjórða sætið á Norðurlandamótinu á morgun þegar liðið mætir Dönum í Kildeskovhallen í Gentofte. Íslenska liðið hefur tapað fyrstu þremur leikjunum sínum en Helena Sverrisdóttir segir stelpurnar staðráðnar að vinna sinn fyrsta sigur á morgun. Liðið byrjaði vel gegn Finnum en gaf eftir eftir fyrsta leikhlutann. "Þetta var mjög sárt tap en ég veit ekki hvað maður getur sagt um þennan leik. Þetta var bara einn af þessum dögum þar sem ekkert gekk. Við erum með hörku lið en það vantar þennan herslumun til þess að klára leikina. Við höfum ekki fundið þennnan herslumun en við ætlum okkur að gera það á morgun," segir Helena Sverrisdóttir, varafyrirliði íslenska liðsins. Helena segir að stelpurnar hafi haldið hópinn í dag og reynt að stappa stálinu í hverja aðra eftir þrjá tapleiki í röð. "Við vorum mjög súrar eftir leikinn því við ætluðum svo að vinna Finnana í dag. Við fórum saman niður í bæ eftir leikinn, borðuðum saman og ræktuðum liðsandann. Við erum orðnar spenntar fyrir að spila leikinn á morgun og við ætlum að sanna okkur. Ég held að nú sé bara rétti tíminn til þess að sanna sig," segir Helena. Helena er ánægð með undirbúninginn og segist viss um að nú fari hann að skila sér. "Við erum búnar að æfa svo rosalega mikið í sumar og ég veit það að engin okkar langar til þess að fara í gegnum þetta mót sigurlausar. Við ætlum að gefa allt í þetta og við eigum eftir að sanna að við erum betri en við erum búnar að sýna. Vonandi á þetta eftir að koma á morgun. Við eigum svo mikið inni og maður finnur það alveg. Það á eftir að koma sá dagur þegar þetta gengur allt upp hjá okkur," segir Helena og bætir við. "Við eigum búnar að ná mörgum góðum köflum þar sem við höfum spilað mjög góðan körfubolta á þessu móti og við ætlum að sýna það á morgun að við getum spilað körfuboltaleik þar sem bæði vörnin og sóknin eru að ganga vel á sama tíma," segir Helena bjartsýn fyrir leikinn á móti heimstúlkum á morgun.
Maður finnur það alveg að við eigum svo mikið inni