31 júl. 2008Niðurröðun Iceland Express deildar karla liggur nú fyrir og hefur verið send á félögin. Deildin fer af stað fimmtudaginn 16. október og hefst með þremur leikjum, en í vetur verður fyrirkomulagið þannig að þrír leikir fara fram á kvöldi. Leikjadagarnir eru þeir sömu og hafa verið undanfarin ár. Annars vegar er leikið fimmtudag/föstudag og hins vegar sunnudag/mánudag. [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLnNjaGVkdWxl[v-]Niðurröðun Iceland Express deildar karla[slod-] Á nýja tölfræðivef sambandsins sem er hægt að velja hér að ofan geta menn skoðað allar 22 umferðir deildarinnar. Opnunarleikur Iceland Express deildar karla þetta haustið verður á heimavelli nýliða FSu í Iðu á Selfossi en þeir taka á móti Njarðvíkingum sem hafa verið lengst allra liða deildarinnar í úrvalsdeild til þessa. Aðrar deildir eru í vinnslu en við færum fréttir af þeim um leið og þær liggja fyrir.