29 júl. 2008Mótahald yngri flokka er nú komið á vefinn en þar má finna helstu dagssetningar fyrir yngri flokkana á komandi vetri bæði í Íslandsmóti, bikarkeppni og stærstu minniboltamótunum. Nú er um að gera að foreldrar kíkji yfir planið áður en vetraráætlunin er sett upp. Tengill á mótaplanið: [v+]http://www.kki.is/skjol/motaplan_yngri_flokka_2008_2009.pdf[v-]Mótaplan yngri flokka 2008-2009[slod-] Einnig er dagatal KKÍ fyrir keppnistímabilið 2008-2009 klárt og það má finna [v+]http://www.kki.is/skjol/calendar_2008_2009_lokautgafa.pdf[v-] hér[slod-] Niðurröðun fyrir deildarkeppnir er í vinnslu en er að vænta á vefinn á næstunni.