18 júl. 2008Á morgun laugardag 19. júlí verður Streetball mót í Reykjanesbæ og lofa mótshaldarar góðu veðri og engu verði. Mótið fer fram á hinum glæsilega útivelli sem er við Íþróttahúsið við Sunnubraut í Keflavík og hefst klukkan 13:00. Það eru allir velkomnir og má lið samanstanda af 5 leikmönnum en það eru 3 leikmenn inn á í einu. Það er ekkert mótsgjald og er tekið við skráningum á liðum á staðnum. Þetta verður fyrsta mótið af nokkrum sem eru ráðgerð á næstunni og er stafnan að enda með einu risastóru í tengslum við Ljósanóttina. Með fjölgun þessara glæsilegu útivalla hefur áhuginn á Streetball aukist mikið.