17 júl. 2008A-landslið kvenna hefur æft vel í sumar undir styrkri stjórn Ágústs Björgvinssonar og aðstoðarmanna hans og um helgina verður liðið í æfingabúðum í Borgarnesi. Liðið undirbýr sig fyrir Norðurlandamót sem verður dagana 4. - 9. ágúst Í Danmörku og Evrópukeppni sem hefst 27. ágúst. Það er óhætt að segja að liðið hafi dregist í spennandi en jafnframt erfiðan riðil í Evrópukeppninni en liðið er í riðli með Slóveníu, Montenegro, Írlandi, Hollandi og Sviss. Leikið er heima og heiman á tveimur árum. Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn núna: Fanney Guðmundsdóttir, Hamar Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar Guðbjörg Sverrirsdóttir, Haukar Helena Sverrirsdóttir, Haukar / TCU Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukar Hafrún Hálfdánardóttir, Hamar Jóhanna B Sveinsdóttir, Hamar Sigrún Ámundadóttir, KR Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR Guðrún Ámundadóttir, KR Helga Einarsdóttir, KR Hildur Sigurðardóttir, KR Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík María Ben Erlingsdóttir, Keflavík / UTPA Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Ingibjörg Jakobsdóttir, UMFG Jovana Lilja Stefánsdóttir, UMFG Petrúnella Skúladóttir, UMFG Signý Hermannsdóttir, Valur Eftir helgina mun Ágúst minnka hópinn niður í 14 leikmenn.