16 júl. 2008U-16 ára landslið stúlkna leikur við Albaníu í dag og hefst leikurinn klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Íslenska liðið sigraði Gíbraltar auðveldlega í gær en það má búast við jafnari leik í dag. Albanía vann Gíbraltar á fyrsta degi mótsins líka nokkuð örugglega svo það reynir á okkar stelpur í dag. Hæg verður að fylgjast með leiknum beint á netinu [v+]http://www.fibaeurope-u16women.com/enDivC/default.asp[v-]hér[slod-] en jafnframt er hægt að lesa allt um mótið á þessari síðu.