16 júl. 2008Íslensku stelpurnar hafa nú tryggt sér sæti í undanúrslitum eftir að þær fóru með sigur af hólmi í leiknum við Albaníu fyrr í dag. Stúlkurnar frá Albaníu veittu meiri mótspyrnu heldur en stöllur þeirra frá Gíbraltar í gær. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi og var það aðallega vegna þess hversu illa stelpunum okkar gekk að koma boltanum í körfuna. Albanir komust yfir um miðjan leikhlutann en íslenska liðið lét ekki slá sig útaf laginu og náði forystunni áður en fyrsti leikhluti var úti, 20-14. Stelpurnar skoruðu 8 fyrstu stig annars leikhluta og lögðu þar með grunninn að sigrinum. Eftir það skiptust liðin aftur á körfum en rétt fyrir lok leikhlutans náðu stelpurnar muninum upp í 13 stig sem hélst í hálfleik, 41-28. Albönsku stelpurnar gerðu hvað þær gátu til að ná muninum niður eftir hlé en um miðjan leikhlutann var allur vindur úr þeim og gengu okkar stelpur á lagið og leiddu með 60-40 fyrir lokaleikhlutann. Stelpurnar okkar gerðu vel í fjórða leikhluta, þær slökuðu þó aðeins á klónni í lok leiksins en sigruðu engu að síður örugglega 71-49. Guðbjörg Sverrisdóttir var stigahæst með 20 stig en næst henni kom Sara Magnúsdóttir með 11 stig. Heiðrún Kristmundsdóttir átti góðan leik og var með 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Nýliðinn Bergdís Ragnarsdóttir leiddi liðið í teknum fráköstum með 12 á einungis 14 mínútum, þar af voru 7 sóknarfráköst. Annars átti liðið heilt yfir góðan leik og fagnaði sanngjörnum sigri að leikslokum. Í fyrramálið fer hópurinn á æfingu en þær eiga næsta leik í undanúrslitunum á föstudaginn. Á morgun (fimmtudag) gefst því tími til að slaka á og skoða sig um í því frábæra umhverfi sem er að finna hér í Mónakó. Það er mikill hugur í liðinu og markið sett á sigur í þeim leikjum sem eftir eru. Sendum bestu kveðjur til allra heima á Fróni.