15 júl. 2008Íslenska karlalandsliðið tapaði öðru sinni gegn Litháen í dag en leikurinn fór fram í Vilnius. það var mikil stemning á leiknum en um 10.000 áhorfendur voru mættir til að sjá leikinn. Íslenska liðið byrjaði af miklum krafti og var jafnt á öllum tölum í fyrri hálfleik þar til að heimamenn náðu smá áhlaupi undir lok hálfleiksins. Staðan í hálfleik var 45:33 Heimamenn byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og náðu fljótlega góðri forystu og urðu lokatölur [v+]http://www.musukrepsinis.lt/public/files/LTU_ISL_2008-07-15.pdf[v-]105:67[slod-] Logi Gunnarsson var bestur íslenska liðsins í dag en hann skoraði 23 stig og tók 4 fráköst að auki, Jakob Sigurðarson skoraði 14 stig og gaf 4 stoðsendingar og Sigurður Þorvaldsson skoraði 10 auk þess að taka 4 fráköst. Litháar höfðu betur í fráköstum 44 gegn 29 og þeir gáfu 30 stoðsendingar á móti 8 okkar manna. Litháar voru með 71% 2 stiga nýtingu á móti 31% hjá okkur. Litháar hittu úr 12 af 28 þriggja stiga skotum sem gerir 43% nýtingu. Íslenska liðið hitti úr 12 af 32 þriggja stiga skotum sínum sem gerir 37% nýtingu. Íslenska liðið var að leika mun betur í dag þó að munurinn hafi verið 38 stig í lokin. Heimamenn eru einfaldlega með eitt af bestu liðum heims og engin skömm að tapa fyrir slíku liði.