13 júl. 2008Leikur Íslands og Litháen var að ljúka í Kaunas í Litháen og voru heimamenn miklu sterkari í leiknum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 30:19 en Litháar áttu eftir að bæta vel í og höfðu góða forystu í hálfleik 61:35. Litháar sýndu áfram styrk sinn í seinni hálfleik og áttu strákarnir okkar erfitt uppdráttar gegn líkamlega sterkum og stórum leikmönnum heimamanna. Lokatölur leiksins urðu 115:62. Helgi Magnússon var stigahæstur með 14 stig, Jakob Sigurðarson setti 10 stig og tók 6 fráköst, Hreggviður Magnússon skoraði 8 stig og þeir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson skoruðu 7 stig og Hlynur tók auk þess 8 fráköst. Ef tölfræðin er skoruð er ljóst að við verðum að gera betur í fráköstum og stoðsendingum en Litháar tóku 52 fráköst gegn 36 fráköstum frá okkur og þeir gáfu 27 stoðsendingar en við einungis 6. Skotnýting Litháa inn í teig var 62% gegn 38% hjá okkur. Litháar eru mjög hávaxnir og það gekk erfiðlega að skora undir körfunum. Liðin mætast aftur á þriðjudaginn í Vilnius. Þetta er hins vegar frábært tækifæri fyrir okkur að spila gegn svona sterku liði og kemur okkur vonandi til góða í baráttunni í haust í Evrópukeppninni.