13 júl. 2008Leikur Íslands og Litháen var rétt í þessu að hefjast og var okkur að berast staðfesting á því að hægt er að horfa á leikinn á netinu. Leikurinn er í beinni [v+]http://www.lrt.lt/standalone.php?channel=234940&quality=high[v-]hér[slod-] Fyrir þá sem ekki ná að horfa á leikinn á netinu þá munum við setja inn gang leiksins eins og kostur er. Staðan eftir 1. leikhluta er 30:19 fyrir Litháum. Staðan í hálfleik er 61:35 heimamönnum í vil. Sigurður Þorvaldsson og Hlynur Bæringssona hafa skorað 7 stig og Logi Gunnarsson 5 fyrir íslenska liðið. Staðann eftir 3. leikhluta er 83:43 og ljóst að íslenska liðið á erfitt uppdráttar gegn þessu sterka liði Litháa. Hreggviður Magnússon er kominn með 8 stig og Sigurður Þorvaldsson og Hlynur eru með 7 stig hvor. Í liði heimamanna eru Ramunas Siskauskas leikmaður CSKA Moskva og Linas Kleiza leikmaður Denver Nuggets stigahæstir með 13 stig hvor.