12 júl. 2008Á morgun fer landslið skipað stúlkum 16 ára og yngri til Mónakó til þess að taka þátt í C- keppni Evrópumóts sem þar fer fram dagana 14. - 19. júlí. Eftirtaldir leikmenn skipa liðið: Guðbjörg Sverrisdóttir Haukum Rannveig Ólafsdóttir Haukum Berglind Gunnarsdóttir Snæfelli Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir Snæfelli Sara Mjöll Magnúsdóttir Snæfelli Telma Lind Ásgeirsdóttir Keflavík, Dagmar Traustadóttir Njarðvík Heiða Björg Valdimarsdóttir Njarðvík Ína María Einarsdóttir Njarðvík Bergdís Ragnarsdóttir Fjölni Heiðrún Kristmundsdóttir KR Elma Jóhannsdóttir KR Þjálfari liðsins er Rob Hodgsson og honum til aðstoðar er Yngvi Gunnlaugsson. Rúnar Pálmarsson er sjúkraþjálfari hópsins og Þóra Melsted fararstjóri. Fyrsti leikur stelpnanna er við Albaníu á mánudaginn kl. 18:15 að staðartíma eða kl. 16:15 að íslenskum tíma. Væntanlega verður hægt að fylgjast með framvindu leiksins á [v+]http://www.fibaeurope-u16women.com/en/[v-]vefsíðu mótsins.[slod-]