11 júl. 2008Íslenska landsliðið er komið til Litháen og verður fyrsta æfingin á morgun. Hópurinn lenti í Vilnius en hélt strax til Kaunas þar sem liðið verður fram á mánudag. Litháar léku fyrr í kvöld æfingaleik gegn Hvíta Rússlandi og eftir jafnan fyrsta leikhluta settu heimamenn í gír og unnu 2. leikhluta 38:12. Eftir það var aldrei spurning og lokatölur urðu 113:57 heimamönnum í hag. Linas Kleiza leikmaður Denver Nuggets var besti maður Litháa í leiknum. Ísland mætir Litháen á sunnudag í Kaunas og hefst leikurinn klukkan 15:45 að íslenskum tíma. Við setjum inn fleiri fréttir af liðinu þegar líður á.