9 júl. 2008Stefán Þór Borgþórsson hefur tekið við starfi mótastjóra KKÍ. Stefán hefur starfað mikið innan körfuboltans og þá aðallega fyrir Hauka í Hafnarfirði. Hann hefur verið virkur í starfi innan kkd. Hauka undanfarin 10 ár og setið í stjórn deildarinnar frá 2001. Fréttaritari á Karfan.is og nú síðast fréttastjóri erlendra frétta á Karfan.is Stefán starfaði síðasta ár sem blaðamaður hjá Víkurfréttum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.