7 júl. 2008Íslenska karlalandsliðið heldur til Litháen á föstudaginn þar sem liðið mun æfa og leika tvo leiki gegn landsliði Litháa. Íslenska liðið var í æfingabúðum í Stykkishólmi síðustu helgi sem gekk vel. Sigurður Ingimundarson valdi 12 leikmenn sem fara til Litháen eftir æfingatörnina. Landsliðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum: Magnús Þór Gunnarsson Njarðvík (56 leikir, 504 stig) Jakob Sigurðarson Univer KSE (37/316) Logi Gunnarsson Gijon (59/774) Jón Arnór Stefánsson Roma (40/476) Hörður Vilhjálmsson Keflavík (5/6) Jóhann Ólafsson Njarðvík (5/4) Helgi Magnússon KR (50/323) Hreggviður Magnússon ÍR (18/69) Páll Axel Vilbergsson Grindavík (76/496) Sigurður Þorvaldsson Snæfell (34/162) Hlynur Bæringsson Snæfell (38/378) Sigurður Þorsteinsson Keflavík (4/4)