2 júl. 2008Íslandsmeistarar KeflavíkurHauka í heimsókn í fyrstu umferð Iceland Express deildar kvenna. Bikarmeistarar UMFGKR í heimsókn en þessi lið mættust einmitt í undanúrslitum í vor rétt eins og Keflavík og Haukar. Nýliðar Snæfells fara í heimsókn í Hveragerði og mæta Hamar og þá mætast Fjölnir og Valur. Iceland Express deild kvenna verður leikin eftir nýju fyrirkomulagi sem var samþykkt á ársþingi 2007 en liðin leika tvöfalda umferð, 14 leiki og svo verður deildinni skipt upp í tvennt en það mun gerast í seinni hluta janúarmánaðar. 1.umferð: Fjölnir - Valur UMFG - KR Hamar - Snæfell Keflavík - Haukar 2.umferð: Fjölnir - Grindavík KR - Hamar Snæfell - Keflavík Valur - Haukar Áætlað er að Iceland Express deild kvenna fari af stað miðvikudaginn 15. október.