1 júl. 2008Nú liggur fyrir töfluröð í Iceland Express deild karla og því ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð í október. Það verður m.a. boðið upp á Borgarslag milli KR og ÍR en þessi lið mættust einmitt í 8 liða úrslitum í úrslitakeppninni í vor. Íslandsmeistarar Keflavíkur hefja leik á heimavelli og þá byrja nýliðarnir tveir báðir á heimavelli í fyrstu umferð. Eftirtalin lið mætast í fyrstu og annari umferð; 1. umferð: FSu - Njarðvík Grindavík - Stjarnan KR - ÍR Snæfell - Tindastóll Keflavík - Þór Ak Breiðablik - Skallagrímur 2. umferð: Skallagrímur - Snæfell Þór Ak - Breiðablik KR - Keflavík Tindastóll - FSu Njarðvík - Grindavík ÍR - Stjarnan Gert er ráð fyrir því að Iceland Express deild karla fari af stað fimmtudaginn 16. október.