24 jún. 2008Körfuknattleikssambandið hefur staðið fyrir afreksbúðum undanfarin fimm sumur. Búðirnar eru fyrir unga og efnilega leikmenn sem þykja eiga framtíðina fyrir sér í körfuboltanum. Í sumar er í fyrsta sinn sem kynjaskipt er í þessu verkefni og heldur Ágúst Björgvinsson utan um afrekshópinn hjá stelpunum en Ágúst þjálfar U18 og A landslið kvenna. Einar Árni Jóhannsson þjálfar strákahópinn en hann er þjálfari U16 og U15 drengja. Afreksbúðirnar standa yfir í sex vikur og fara æfingarnar fram á höfuðborgarsvæðinu. Æft er í þrjár klukkustundir alla virka daga í þessar sex vikur. Þjálfararnir eru að fá til sín góða gesti á æfingarnar og t.d. mun Logi Gunnarsson atvinnumaður með Gijon á Spáni og margreyndur landsliðsmaður heimsækja strákana á morgun. Um 18 leikmenn eru í hvorum hóp að þessu sinni en áður stóð hópurinn af um það bil 20 krökkum í blönduðum hóp svo það má segja að verkefnið hafi stækkað töluvert þetta sumarið.