18 jún. 2008Dagana 20-22 júní ætla Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir að standa fyrir körfuboltabúðum fyrir stelpur á aldrinum 10-15 ára að Ásvöllum í Hafnarfirði. Búðirnar verða í Amerískum stíl, hefjast á föstudegi og standa fram á sunnudag, og m.a. verður kvöldvaka, heimsókn góðra gesta, sundferð, grillveisla og að sjálfsögðu nóg af körfubolta. Verðið er 9.500 krónur þar sem matur og gisting er innifalin. Allir þátttakendur fá bol merkta búðunum. Skráning fer fram á stelpubudir@visir.is Nánari upplýsingar í síma 6612331(Helena)