18 jún. 2008Boston Celtics tók Los Angeles Lakers í kennslustund í 6. leik liðanna og vann sinn 17. meistaratitil. Los Angeles byrjaði ágætlega og setti Kobe niður nokkrar þriggja stiga körfur en það var einungis sýnishorn því fljótlega tóku leikmenn Boston yfir og á tímabili var um algera kennslustund að ræða. Lokatölur leiksins voru [v+]http://sports.espn.go.com/nba/boxscore?gameId=280617002[v-]131:92[slod-] Paul Pierce var í lokin valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna en hann lék sérlega vel á köflum. Það verður þó að segjast að liðsheild Boston hefur verið frábær í vetur og margir leikmenn lagt sitt að mörkum. Kevin Garnett valinn besti varnarmaður tímabilsins og Ray Allen setti met í skoruðum 3 stiga skotum í lokaúrslitum. Hinn sterki varnarleikur Boston kom vel í ljós í síðasta leiknum en á löngum köflum komust leikmenn Lakers hvorki lönd né strönd.