12 jún. 2008Um helgina fara fram hinar árlegu Úrvalsbúðir KKÍ en búðirnar eru tvisvar yfir sumarið, í júní og ágúst. Eins og í fyrra þá eru búðirnar kynjaskiptar en það þótti takast mjög vel í fyrra enda fjöldinn í búðunum verið að aukast frá ári tli árs. Drengirnir verða um helgina í íþróttamiðstöð Grafarvogs, Dalhúsum en stúlkurnar verða í Seljaskóla í Breiðholti. Æfingadagskráin er sú sama hjá krökkunum en eftirtaldir árgangar eru boðaðir í ár; Krakkar ´97 eru 09.00 – 11.00 Krakkar ´96 eru 11.30 – 13.30 Krakkar ´95 eru 14.30 – 16.30 Verð pr. þátttakenda í úrvalsbúðirnar báðar er kr. 4.000,- og greiðist á staðnum. Ingi Þór Steinþórsson unglingalandsliðsþjálfari mun halda utan um búðirnar fyrir drengi í ár en Yngvi Páll Gunnlaugsson unglingalandsliðsþjálfari heldur utan um búðirnar fyrir stúlkur. Færir og reynslumiklir þjálfarar munu vinna með þeim í búðunum og er von á miklum fjölda í ár sem endra nær. Eitthvað hefur borið á því að bréf hafi ekki borist og við biðjum því þjálfara sem hafa tilnefnt að ítreka við börnin að þau séu boðuð í búðirnar um helgina. Einnig ef þjálfarar skiluðu ekki inn nafnalista af einhverjum ástæðum að boða þá krakkana og láta skrá þau á staðnum og þá væri gott að senda þann nafnalista á kki@kki.is til staðfestingar. Síðari æfingahelgin er svo 23. og 24. ágúst. Unglinganefnd og þjálfarar hlakka til að vinna með sprækum krökkum um helgina og óska öllum iðkendum góðs gengis.