4 jún. 2008Körfubolti án landamæra er yfirskrift verkefnis sem hrundið var af stað fyrir 8 árum síðan þar sem ungum og efnilegum leikmönnum er safnað saman. Haukur Pálsson leikmaður Fjölnis og U-16 ára landsliðs Íslands var valinn sem fulltrúi Íslands að þessu sinni og er hann vel að því kominn. Haukur hélt til Tyrklands í gærmorgun og gekk ferðin vel hjá honum og lætur hann vel af því sem komið er. Þjálfarar í búðunum eru m.a. leikmennirnir Mehmet Okur Utah Jazz og Hedo Turkoglu Orlando Magic. Hægt er að lesa meira um þetta verkefni [v+]http://www.nba.com/global/europe/bwb_2008.html[v-]hér[slod-]