22 maí 2008Eins og nokkur síðastliðin ár stendur KKÍ fyrir úrvalsbúðum fyrir efnilega leikmenn, bæði fyrir drengi og stúlkur, en í ár verða búðirnar kynjaskiptar en það var nýbreytni í fyrra og gafst mjög vel. Úrvalsbúðirnar eru undanfari yngri landsliða KKÍ. Að þessu sinni eru það leikmenn fæddir 1995, 1996 og 1997 sem eiga kost á þátttöku í búðunum sem haldnar verða annars vegar 14.-15. júní og hins vegar 23.-24. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar um búðirnar verða í bréfi sem sent verður til þeirra sem tilnefndir eru og munu einnig birtast hér á heimasíðu sambandsins. KKÍ leitar nú til aðildarfélaga og þjálfara um að tilnefna leikmenn í búðirnar og koma þeim á framfæri á skrifstofu KKÍ í tölvupósti á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] eigi síðar en föstudaginn 23. maí. Öll félög eiga að hafa fengið póst til sín um þessa skráningu. Mjög mikilvægt er að fram komi nafn leikmanns og heimilisfang ásamt því frá hvaða félagi hann kemur.