16 maí 2008Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ sitja um helgina FIBA-Europe þing. Þingið fer fram á Möltu í þetta sinn, en þingið sækja allir forsetar og framkvæmdastjórar aðildarsambandanna. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, situr þingið einnig á vegum FIBA Europe en þar situr hann í stjórn.