15 maí 2008Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari karla hefur valið 23ja manna hóp sem mun æfa í sumar í undirbúningi liðsins fyrir Evrópukeppnina í haust. Íslenska liðið mun meðal annars taka þátt í Emerald Hoops móti á Írlandi í ágúst. Þar leikur Ísland gegn Írum, Pólverjum og Notre Dame háskólanum. [v+]http://www.emeraldhoops.com/home/Default.aspx?id=2[v-]Umfjöllun um mótið[slod-] Hópurinn sem Sigurður valdi er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Jón Arnór Stefánsson Roma 26 ára Bakvörður Logi Gunnarsson Gijon 27 ára Bakvörður Finnur Magnússon Catawba 23 ára Miðherji Jakob Sigurðarson Kecskemeti Univer KSE 26 ára Bakvörður Hlynur Bæringsson Snæfell 26 ára Miðherji Sigurður Þorvaldsson Snæfell 28 ára Framherji Páll Axel Vilbergsson Grindavík 30 ára Framherji Þorleifur Ólafsson Grindavík 24 ára Bakvörður Magnús Þór Gunnarsson Keflavík 27 ára Bakvörður Sigurður Þorsteinsson Keflavík 20 ára Miðherji Jón N Hafsteinsson Keflavík 27 ára Framherji Hreggviður Magnússon ÍR 26 ára Framherji Sveinbjörn Claessen ÍR 22 ára Bakvörður Helgi Magnússon KR 26 ára Framherji Fannar Ólafsson KR 30 ára Miðherji Brynjar Björnsson KR 20 ára Bakvörður Egill Jónasson Njarðvík 24 ára Miðherji Jóhann Ólafsson Njarðvík 22 ára Bakvörður Hörður Vilhjálmsson Njarðvík 20 ára Bakvörður Kristinn Jónasson Fjölnir 24 ára Framherji Örn Sigurðarson KR 18 ára Framherji Þröstur Leó Jóhannsson Keflavík 19 ára Framherji Rúnar Ingi Erlingsson Breiðablik 19 ára Bakvörður Þetta er í fyrsta sinn sem Örn, Þröstur Leó og Rúnar Ingi eru valdir í æfingahóp A landsliðsins.