10 maí 2008Sálin Hans Jóns Míns á 20 ára afmæli á þessu ári og hafa þeir verið að fagna því með ýmsum hætti. Skemmst er að minnast stórtónleika þeirra í Laugardalshöllinni. Það er vel við hæfi að fá þá á Lokahóf KKÍ á afmælisárinu og er alveg víst að enginn verður svikinn af balli með þeim. Sálin lék á síðasta Lokaófi okkar og var stemningin frábær. Óhætt er að mæla með óvænta atriðinu sem verður áður en Sálin stígur á svið. Við lofum miklu fjöri.