9 maí 2008Bryndís Ásmundsdóttir söng og leikkona hefur slegið í gegn í vetur í sýningu sem sett var upp til heiðurs Tinu Turner. Bryndís mun mæta sem Tina á lokahóf KKÍ á morgun. Þegar Tina hefur lokið sínum söng og mjaðmahristingi er komið að verðlaunaafendingunni sem verður einkar glæsileg í ár. M.a. verður úrvalslið 1.deildar karla valið. Hápunkturinn er svo þegar úrvalslið Iceland Express deilda verða kynnt og svo bestu leikmenn deildanna. Óvænt atriði mun svo skella á fljótlega eftir verðlaunaafhendinguna og halda fólki við efnið þar til að Sálin Hans Jóns Míns stígur á stokk.