1 maí 200816 ára landslið kvenna tapaði gegn Finnum fyrr í dag, 42-91. Leikurinn var sveiflukenndur framan af, þar sem þær finnsku tóku strax völdin, en þær íslensku náðu að minnka muninn. Finnsku stelpurnar voru að spila sterka vörn og átti liðið í miklum vandræðu með að leysa hana á löngum köflum. Alls munaði 14 stigum að loknum fyrsta leikhluta, 9-23 og munurinn jókst eftir því sem leið á leikinn. 18 stiga bil var á milli liðanna í hálfleik, en þær finnsku kláruðu leikinn í þriðja leikhluta, sem ær unnu 10-28. Lokatölur voru, eins og áður segir, 42-91. Dagmar Traustadóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir og Ína María Einarsdóttir voru stigahæstar íslensku stúlknanna með 8 stig hver. Rannveig Ólafsdóttir og Heiðrún Kristmundsdóttir skoruðu 6 stig hvor og María Jónsdóttir, Elma Jóhannsdóttir og Thelma Ásgeirsdóttir skiluðu 2 stigum hver. Skotnýting liðsins var síður en svo til fyrirmyndar, 16 af 49 tveggja stiga skotum og 1 af 9 þriggja stiga skotum rötuðu rétta leið, en liðið var einnig með 40 tapaða bolta.