30 apr. 2008Fjórir krakkar af þeim 48 sem eru á leið á Norðurlandamót unglinga í Solna í Svíþjóð eru að koma í fjórða sinn á mótið. Þetta eru þau Örn Sigurðarson í 18 ára liði karla og þær Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Ingibjörg Jakobsdóttir og Hafrún Hálfdánardóttir í liði 18 ára kvenna. 21 leikmaður úr liðunum fjórum er hinsvegar að koma á sitt fyrsta Norðurlandamót þar af 11 af 12 leikmönnum 16 ára liðs karla. Öll hafa þau Örn, Ragna Margrét, Ingibjörg og Hafrún, náð að leika 14 leiki á Norðurlandamótinu. Örn er langstigahæstur á mótinu af þeim sem taka þátt að þessu sinni en hann hefur skorað 118 stig á NM 2005-2007. Örn er eins og er tólfti stigahæsti íslenski leikmaðurinn á NM frá upphafi og vantar aðeins eitt stig til að komast upp fyrir Rúnar Inga Erlngsson í 11. sætið. Þessi fjögur bætast í hóp sjö annarra sem hafa náð því að spila fjórum sinnum á Norðurlandamótinu síðan að það varð að árlegum viðburði í Solnahallen í úthverfi Stokkhólms árið 2003. Þau sem hafa einnig náð þessum árangri eru Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Margrét Kara Sturludóttir, María Ben Erlingsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Þröstur Leó Jóhannsson og Hjörtur Hrafn Einarsson. Margrét Kara, Þröstur og Hjörtur bættust í þennan hóp í fyrra. Sjö krakkar til viðbótar eru að koma á sitt þriðja Norðurlandamót en það eru Íris Sverrisdóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Lilja Ósk Sigmarsdótitir úr 18 ára liði kvenna og þeir Arnþór Freyr Guðmundssson, Baldur Þór Ragnarsson, Víkingur Sindri Ólafsson og Þorgrímur Guðni Björnsson úr 18 ára liði karla. Í fjórða sinn á NM: Örn Sigurðarson Númer á treyju: 15 í liði 18 ára karla Félag: KR Fæðingarár: 1990 Hæð: 203 sm Landsleikir/stig: 22 leikir, 207 stig Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 118 stig) 2007 4 leikir, 34 stig fyrir 18 ára liðið 2006 5 leikir, 73 stig fyrir 16 ára liðið 2005 5 leikir, 11 stig fyrir 16 ára liðið Ingibjörg Jakobsdóttir Númer á treyju: 7 í liði 18 ára kvenna Félag: Grindavík Fæðingarár: 1990 Hæð: 174 sm Landsleikir/stig: 30 leikir, 131 stig (þar af 1 leikur og 0 stig fyrir A-liðið) Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 69 stig) 2007 5 leikir, 46 stig fyrir 18 ára liðið 2006 4 leikir, 14 stig fyrir 16 ára liðið 2005 5 leikir, 9 stig fyrir 16 ára liðið Hafrún Hálfdánardóttir Númer á treyju: 11 í liði 18 ára kvenna Félag: Hamar Fæðingarár: 1990 Hæð: 184 sm Landsleikir/stig: 29 leikir, 179 stig Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 55 stig) 2007 5 leikir, 10 stig fyrir 18 ára liðið 2006 4 leikir, 26 stig fyrir 16 ára liðið 2005 5 leikir, 19 stig fyrir 16 ára liðið Ragna Margrét Brynjarsdóttir Númer á treyju: 15 í liði 18 ára kvenna Félag: Haukar Fæðingarár: 1990 Hæð: 188 sm Landsleikir/stig: 29 leikir, 174 stig Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 83 stig) 2007 5 leikir, 29 stig fyrir 18 ára liðið 2006 4 leikir, 27 stig fyrir 16 ára liðið 2005 5 leikir, 27 stig fyrir 16 ára liðið Flestir leikir á NM 2003-2007: Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 20 Margrét Kara Sturludóttir 20 María Ben Erlingsdóttir 20 Helena Sverrisdóttir 20 Bryndís Guðmundsdóttir 20 Þröstur Leó Jóhannsson 19 Hjörtur Hrafn Einarsson 19 Hafþór Björnsson 15 Hörður Axel Vilhjálmsson 15 Hörður Hreiðarsson 15 Brynjar Þór Björnsson 15 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15 Bára Fanney Hálfdanardóttir 15 Bára Bragadóttir 15 Ingibjörg Skúladóttir 15 Ólafur Halldór Torfason 15 Unnur Tara Jónsdóttir 15 Flest stig á NM 2003-2007: Helena Sverrisdóttir 486 Hjörtur Hrafn Einarsson 304 Brynjar Þór Björnsson 294 María Ben Erlingsdóttir 249 Jóhann Árni Ólafsson 235 Hörður Axel Vilhjálmsson 221 Þröstur Leó Jóhannsson 219 Bryndís Guðmundsdóttir 179 Kristján Rúnar Sigurðsson 159 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 140 Rúnar Ingi Erlingsson 119 Örn Sigurðarson 118 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 117 Margrét Kara Sturludóttir 111 Pavel Ermolinskij 106 Unnur Tara Jónsdóttir 105 Ólafur Halldór Torfason 101