30 apr. 2008Norðurlandamót unglinga hefst í Solna í Svíþjóð í dag og er þetta sjötta árið í röð sem mótið fer fram á þessum stað og með þessu fyrirkomulagi. Heimasíðan kynnir unglingalandsliðin sem eru á leiðinni til Solna og nú er komið að 16 ára landsliði kvenna sem spilar sína fyrstu leiki ekki fyrr en á morgun þegar liðið spilar tvo leiki. Leikmenn liðsins koma frá sex félögum. Haukar eiga flesta leikmenn í liðinu eða alls þrjá en KR, Njarðvík, Snæfell og Keflavík eiga öll tvo leikmenn hvert. Hamar er síðan sjötta liðið sem á leikmann í liðinu að þessu sinni. Leikmennirnir sem koma frá KR eru nýbúnar að skipta yfir í Vesturbæjarliðið en þær koma upprunalega frá Hrunamönnum. Fimm leikmenn liðsins eru að spila upp fyrir sig þar af er Keflvíkingurinn María Ben Jónsdóttir að spila upp fyrir sig annað árið í röð en í fyrra var hún að spila tvö ár upp fyrir sig á mótinu. Aðrar sem eru að spila upp fyrir sig eru Snæfellingarnir Berglind Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Sævarsdóttir, Keflvíkingurinn Telma Lind Ásgeirsdóttir og Njarðvíkingurinn Ína María Einarsdóttir. Sextán ára landslið kvenna náði sínum besta árangri vorið 2004 þegar liðið varð Norðurlandameistari en liðið hefur ekki náð í verðlaun á þremur síðustu mótum. Liðið spilaði um 3.sætið á mótinu í fyrra. Guðbjörg Sverrisdóttir úr Haukum er bæði leikjahæsti og stigahæsti leikmaður liðsins en hún hefur spilað 12 landsleiki og skorað í þeim 86 stig eða 7,2 stig að meðaltali í leik. Guðbjörg er ein af sex leikmönnum liðsins sem var með á NM í fyrra en hinar eru Rannveig Ólafsdóttir, Heiðrún Kristmundsdóttir, Elma Jóhannsdóttir, Dagmar Traustadóttir og María Ben Jónsdóttir. 16 ára lið kvenna á NM 2008 Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Fimmtudagur 1. maí 10:30 Ísland-Finnland Fimmtudagur 1. maí 18:30 Ísland-Noregur Föstudagur 2. maí 11:00 Ísland-Svíþjóð Laugardagur 3. maí 11:00 Ísland-Danmörk Á sunnudeginum, 4. maí, er síðan leikið um sæti Bakverðir: Rannveig Ólafsdóttir Varafyrirliði liðsins Númer á treyju: 5 Félag: Haukar Fæðingarár: 1992 Hæð: 168 sm Landsleikir/stig: 5 leikir, 6 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 6 stig með 16 ára liðinu Heiðrún Kristmundsdóttir Númer á treyju: 6 Félag: KR Fæðingarár: 1992 Hæð: 168 sm Landsleikir/stig: 5 leikir, 17 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 17 stig með 16 ára liðinu Dagmar Traustadóttir Númer á treyju: 8 Félag: Njarðvík Fæðingarár: 1992 Hæð: 173 sm Landsleikir/stig: 5 leikir, 1 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 1 stig með 16 ára liðinu Thelma Lind Ásgeirsdóttir Númer á treyju: 10 Félag: Keflavík Fæðingarár: 1993 Hæð: 170 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Ína María Einarsdóttir Númer á treyju: 12 Félag: Njarðvík Fæðingarár: 1993 Hæð: 170 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Framherjar: Guðbjörg Sverrisdóttir Fyrirliði liðsins Númer á treyju: 4 Félag: Haukar Fæðingarár: 1992 Hæð: 180 sm Landsleikir/stig: 12 leikir, 86 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 73 stig með 16 ára liðinu Elma Jóhannsdóttir Númer á treyju: 9 Félag: KR Fæðingarár: 1992 Hæð: 172 sm Landsleikir/stig: 5 leikir, 13 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 13 stig með 16 ára liðinu Berglind Gunnarsdóttir Númer á treyju: 11 Félag: Snæfell Fæðingarár: 1993 Hæð: 175 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Jenný Harðardóttir Númer á treyju: 13 Félag: Hamar Fæðingarár: 1992 Hæð: 180 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Árný Þóra Hálfdanardóttir Númer á treyju: 14 Félag: Haukar Fæðingarár: 1992 Hæð: 178 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Miðherjar: María Ben Jónsdóttir Númer á treyju: 7 Félag: Keflavík Fæðingarár: 1993 Hæð: 185 sm Landsleikir/stig: 5 leikir, 9 stig Reynsla af NM: Annað skipti 2007 5 leikir, 9 stig með 16 ára liðinu Hrafnhildur Sævarsdóttir Númer á treyju: 15 Félag: Snæfell Fæðingarár: 1993 Hæð: 180 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Þjálfari: Þjálfari liðsins er Robert Hodgson þjálfari meistaraflokks karla og kvenna hjá Val. Þetta er í fyrsta sinn sem Robert þjálfar landslið en hann hefur aðstoðað við þjálfun 16 ára landsliðs kvenna áður.