25 apr. 2008Um helgina mun seinni úrslitahelgi yngri flokkanna fara fram í DHL-Höllinni. Um síðustu helgi urðu KR, Grindavík og Njarðvík Íslandsmeistarar en það verður áhugavert að sjá hvaða lið vinna titla um helgina. Undanúrslitin verða leikin í kvöld og á morgun en dagskráin er eftirfarandi: Föstudagur: Unglingaflokkur karla: KR - FSU 18:30 Keflavík - Fjölnir 20:30 Laugardagur: 9. flokkur karla: Breiðablik - Fjölnir 9:00 Þór Þ./Hamar - Keflavík 10:45 9. flokkur kvenna: Keflavík - UMFN 12:30 Grindavík - Keflavík B 14:15 11. flokkur karla: Fjölnir - Breiðablik 16:00 Haukar - Skallagrímur 17:45 Stúlknaflokkur: Grindavík - Keflavík 19:30 Haukar - KR 21:15 Umgjörð úrslitanna hefur verið frábær hjá unglingaráði KR og það má búast við því sama um þessa helgi. Allir leikirnir verða sendir úr í lifandi tölfræði á kki.is og einnig mun KR TV sýna frá leikjunum á netinu.