24 apr. 2008Í kvöld mætast Keflavík og Snæfell í þriðja sinn en staðan er 2-0 fyrir Keflavík. Keflavík getur með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn sem yrði að teljast mikið afrek eftir að hafa lent 0-2 undir í einvíginu gegn ÍR. Borgarskotið verður til London í kvöld. " Express Hringlið " verður tvisvar í kvöld en það er óhætt að segja að það hafi komið skemmtilega inn í úrslitakeppnina. Hreiðar forstjóri Kaupþings fór á kostum í " Hringlinu " í síðasta leik þegar hann ringlaður tók knöttinn aftur fyrir bak áður en hann reyndi sniðskot sem því miður geigaði. Leikurinn hefst klukkan 19:15 [v+]http://www.keflavik.is/Karfan/[v-]Heimasíða Keflavíkur[slod-] [v+]http://www.snaefell.is/?i=1[v-]Heimasíða Snæfells[slod-]