24 apr. 2008Keflavík varð í kvöld Íslandsmeistari þegar liðið lagði Snæfell í þriðja leik liðanna [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yJm9fbGVhZz0yJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTc5[v-]98-74[slod-]. Þeir sigruðu þar með einvígið 3-0 og tryggðu sér 9 Íslandsmeistaratitil sinn. Það var frábær stemmning í Keflavík í kvöld. Toyotahöllin var troðfull en 1470 áhorfendur mættu og horfðu á leikinn. Keflvíkingar léku frábærlega og fljótlega í þriðja leikhluta var orðið ljóst í hvað stefndi. Gunnar Einarsson var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar en hann skoraði 20 stig í kvöld og lék frábærlega í þessarri úrslitakeppni. Tommy Johnson var stigahæstur í kvöld með 24 stig en allir leikmenn Keflavíkur voru að leika vel. Snæfellingar börðust vel í byrjun en þeir voru þó alltaf skrefinu á eftir og virtust ekki ráða við frábæran leik Keflavíkur. Þeir geta þó verið nokkuð sáttir við tímabilið en þeir urðu Powerade- og Lýsingarbikarmeistarar í vetur. Þar með er frábærri úrslitakeppni lokið en stemmningin á öllum leikjunum í var ótrúlega góð og liðin buðu uppá frábæra skemmtun sem körfuknattleiksmenn geta verið stoltir af. Við óskum Keflvíkingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.