23 apr. 2008Miðasala er hafin á Lokahóf KKÍ sem verður laugardaginn 10. maí á Broadway. Allir þeir sem panta og greiða fyrir miðana fyrir 2.maí fara í pott og geta unnið ferð til Evrópu með Iceland Express. Tveir heppnir aðilar verða dregnir út og fá þeir miða fyrir tvo. Skráning og greiðsla er [v+]http://www.broadway.is/page2.php?idl=42&idp=3[v-]hér[slod-]. Það er hægt að kaupa annars vegar á hófið og hins vegar bara á ballið. Í fyrra varð uppselt viku fyrir hóf svo það er um að gera að hafa hraðann á og kaupa sér miða. Það er einnig búið að setja flipa hægra megin á [v+]http://www.kki.is/[v-]kki.is[slod-] sem leiðir beint á síðuna til að panta og ganga frá.