19 apr. 2008Fyrsta leik úrslita Iceland Express deildar karla er nýlokið. Keflavík sigraði eftir æsispennandi leik [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/#[v-]81-79[slod-] og er þar með komið með 1-0 forystu í einvíginu. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og leikurinn fór vel af stað. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið en Snæfell var þó aldrei langt frá og liðin skiptust nokkrum sinnum á að hafa forystuna. Lokamínúturnar voru spennuþrungnar en Snæfell náði að minnka 6 stiga forskot Keflavíkur niður í eitt stig með stigum frá Slobodan Subasic og Justin Shouse. Jón Ólafur Jónsson tók svo þriggja stiga skot í lokin sem geigaði og Tommy Johnson náði frákastinu. B.A. Walker var valinn maður leiksins og hlaut að launum flugmiða með Iceland Express. Næsti leikur liðanna verður á mánudag í Stykkishólmi. Búast má við öðrum skemmtilegum leik en leikmenn beggja liða sýndu glæsileg tilþrif í leiknum í dag og buðu uppá frábæra skemmtun.