17 apr. 2008Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur boðið til sín úrvalsliði frá Bandarríkjunum sem er U-15 ára leikmönnum. Liðið kemur til landsins í dag og mun æfa og leika æfingaleiki hérna. Liðið kemur frá AAU sports University í New Jersey, USA. Í liðinu eru nokkrir strákar sem eru rankaðir á topp 25 bestu í sínum aldurshópi í USA og eru flottir háskólar í Bandaríkjunum nú þegar farnir að fylgjast með þeim og bíða eftir að strákarnir nái aldri til að koma og spila með þeim. Með liðinu verða 5 þjálfarar og stjórnendur skólans og þar á meðal kemur fyrrverandi NBA leikmaðurinn Darryl Dawkins sem þekktur er fyrir sínar "monster" troðslur þar sem spjöldin hafa splundrast með tilheyrandi tilþrifum. Liðið kemur til landsins í dag fimmtudaginn 17.apríl og verða þeir í Borgarnesi og æfa og spila svo við lið frá Fjölni á föstudagskvöldið í Borgarnesi. Um helgina verður svo haldið mót þar sem AAU liðið mun spila ásamt liði heimamanna og fleirum. Á mánudaginn mun liðið fara í skoðunarferð en á þriðjudaginn heldur það til Reykjavíkur þar sem liðið mun spila æfingaleik við U18 ára landslið Íslands í íþróttahúsinu í Dalhúsum í Grafarvogi kl.18:30