14 apr. 2008Nú er körfuboltavertíðin að ná hámarki og Íslandsmótum í flestum flokkum við það að klárast eða nýlokið. Úrslit yngri flokka verða haldin 18.-20. apríl og 25.-27. apríl í DHL-Höllinni. Úrslit munu ráðast í eldri flokkunum um þessar helgar en yngstu iðkendurnir ljúka Íslandsmótunum í fjórðu umferð fjölliðamótanna. Nú er komið á hreint hvaða lið munu mætast í 4-liða úrslitum um þessar helgar fyrir utan liðin í Drengjaflokki en 8-liða úrslit þar verða leikin á þriðjudag og miðvikudag. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá fyrri helgarinnar. Fyrri helgin, 18.-20. apríl: Föstudagur: Úrslit í Drengjaflokki klukkan 18:30 og 20:30. Laugardagur: 10. flokkur kvenna 10:00 Njarðvík - Keflavík 11:30 Haukar - Snæfell 10. flokkur karla 13:00 Fjölnir - Hamar/Þór Þ. 14:30 Breiðablik - Njarðvík Sunnudagur: 10:00 Úrslit í 10. flokki kvenna. 12:00 Úrslit í 10. flokki karla. 14:00 Úrslit í Unglingaflokki kvenna: Grindavík - Haukar 16:00 Úrslit í Drengjaflokki Þjálfarar liðanna sem eru í 4-liða úrslitum eru beðnir um að senda útfyllta [v+]http://www.kki.is/skjol/Leikmannalisti.xls[v-]leikmannalista[slod-] á [p+]oddur@kki.is[p-]oddur@kki.is[slod-] fyrir miðvikudag.